I´m the only gay in the village

Brynja

08.06.2008 20:43:36 / Brynja

Breytingar eru yfirleitt til góðs

http://brynjalu.blog.is/blog/brynja_svanhvit/

Nýtt blogg,kíkið á það kæru félagar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2008 13:54:43 / Brynja

Stóri dagurinn!

Takk fyrir öll kommentin kæra fólk.

Ég er að fara í Víkurröst í kvöld í Júlla-Júró partí á vegum Fjörfisks,ekki leiðinlegt.

Ég þori ekki að spá miklu um úrslitin fyrr en eftir að lögin hafa rúllað en svona lauslega,þá spái ég Íslandi 7.sætinu og ég held að Úkraína eða Serbía taki þetta.Svo gæti Ísland unnið eða Frakkland eða Bosnía,maður veit aldrei:)Spennandi!!!!

Það er búið að sía út mikið af leiðinlegum lögum og mér líst ágætlega á þessi lög yfirhöfuð.Það eru ca.10 lög sem mér finnst annaðhvort mjög ógeðsleg eða bara ágæt.


Góða skemmtun í kvöld og áfram Ísland!!!!

» 7 hafa sagt sína skoðun

21.05.2008 18:03:26 / Brynja

Júra hvað???

*Spánn.Palli kallaði flytjandann Erík Fjalar Spánverja,ehemm sko.Mér finnst Eiríkur Fjalar fyndinn en ekki hinn.Þetta virkar ekki fyrir mig:(

*Bretland.Mjög leiðinlegt bara!!!

*Þýskaland.Sama!!!

*Frakkland.Eitt orð yfir þetta:GEGGJAÐ!!!Ég elska þetta!!!

Og svo Serbía,the hosts.Þetta er uppáhalds lagið mitt í keppninni,alveg yndislega fallegt og ég elska þegar hún syngur ''núna nei''hehehe.Þeir fatta sem vilja fatta:)Þetta er bara gæsahúð út í gegn og ég er alveg viss um að þetta verður stórkostlegt á sviðinu....bíðið bara:)

Spenningurinn í hámarki!!!Það styttist í stóru stundina okkar Íslendinga og ekki síst Dallas-búa.Ég var í Húsasmiðjunni áðan að kaupa fánaveifur og það er skemmst frá því að segja að það var nánast slegist um þær.Allt í gangi,ég er á yfirsnúningi,sjett mammamía halelúja hvað þetta er spennó!!!

» 8 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 22:48:54 / Brynja

Forkeppni 1

Þá er hún yfirstaðin og úrslitin eru svona:

Grikkland
Rúmenía
Bosnía og Hersegóvína
Finnland
Rússland
Ísrael
Aserbajdsan
Armenía
Pólland
Noregur

Ég reyndist ansi sannspá,giskaði á 8 rétt lönd.Ég hélt að Írland og Slóvenía kæmust áfram,en það gekk ekki og ég er fegin að þurfa ekki að hlusta á þennan mjög ófyndna kalkún á laugardaginn en er pínu spæld í sambandi við hitt lagið:(

Á morgun ætla ég að segja mína skoðun á ''seif'' löndunum fjórum og Serbíu,fylgist með!!!

Ég vil benda á tengil hér á síðunni minni,bloggið hjá Júlla,ætla ekki að rita neitt um það hér því ábyggilega allir Íslendingar vita hvað hann er að bralla núna:)Tékkið á þessu ok.

Heyrumst krúttin mín!

ps.hvað var málið með tímasetninguna?19:40???Keppin byrjaði 19:00 og lukkan að Inga hringdi í mig!!Bannað að auglýsa réttan tíma!Ég missti af fyrsta laginu,Svartfjallalandi og ég græt það ekki en samt.......abbó!



» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 22:27:17 / Brynja

Eurovision rýni

Jæja krakkar mínir,þetta er að bresta á!

Fyrri forkeppnin er annaðkvöld.Ég verð að vera alveg hreinskilin....það er margt miður fallegt þar á ferð og ég ætla að hafa þetta mjög einfalt.

Lögin frá eftirtöldum löndum er vægast sagt mjög vond og ég hef ekkert annað að segja um þau en:BOOOOORING!!!


Svartfjallaland

Ísrael

Eistland

Moldavía

San Marínó

Belgía

Aserbaíjdsan

Pólland

Írland

Holland

Rúmenía

Rússland

Þetta er slatti!!!Því miður þá eru mjög mörg lög í keppninni ekki góð:(En sitt sýnist hverjum:)

En hér koma mín komment um lögin sem verða flutt annaðkvöld sem fá ekki núllið frá mér:)

*Slóvenía.Þetta er mjög gott lag sem hefur ekki fengið nógu mikla athygli.Hresst og ferskt og ég vona að það komist áfram.Eitt af mínum uppáhalds lögum í keppninni.

*Noregur.Ég hef ekki haft mikið álit á söngkonunni en ég hef hlustað á hana ''live'' og hún er alveg ágæt litla kindin:)Ég fíla þetta lag í botn!!!!Geggjað flott og Amy Winehouse áhrifin klárlega allsráðandi og það er ekki eins og það sé eitthvað slæmt:)Það sem ræður úrslitum um þetta lag er að gellan reyni að ná salnum með sér.Góður söngur og lag er ekki endilega það sem ræður úrslitum.Hún er sennilega ekki nógu mikill töffari til að fara með þetta alla leið.Hún er með nánast allt á hreinu,of mikið af fólki með henni,hún ætti að vera ein á sviðinu og ég vona að hún hendi krúttíkjólnum og reyni að vera meira töff.En lagið er geðveikt og takið sérstaklega eftir síðustu 6 sekúndunum í laginu:)Flottur endir finnst mér:)

*Andorra.Ágætis ''bít'' sem gæti virkað ágætlega á flesta en þetta er ekki að fara að gera einhverjar rósir.Ekki alslæmt svosem,allaveg ekki núll en kannski frekar nálægt því.Þau koma strax á eftir Dustin the turkey og það er ekkert rosalega gott:)Ég held að þetta lag gleymist strax.....Bíddu Andorra????Já sæll!!!

*Bosnía og Hersegóvína.Þetta er ekki auðmelt það eitt er víst!Lagið skiptist í hina ýmsu kafla og atriðið er ansi óvenjulegt,einhver sveitarómantík með kjánalegu ívafi,eins konar trúða-dæmi eitthvað...ekki auðvelt að fatta það.En ég er að verða ansi hrifin af laginu og ég er enn að reyna að skilja atriðið en kannski er það ''pönnsið''í þessu öllu,að fatta þetta ekki og reyna bara að skemmta sér og þau sannarlega ná athygli manns.Ég man að ég sagði við Hoffu systir eftir að ég var búin að horfa á þetta ca.2svar,þetta er hryllingur!!!:)

*Armenía.Quele Quele......þetta er æðislegt lag!!!Ég finn lykt af sigri......kannske bara:)

*Finnland.Nú verða Finnar að finna sig í einhverju öðru en rokki og róli þó að það sé besta músík sem fyrir finnst þá er þetta bara búið,sorrí elsku Karki Rokkovailninen,Irrki Koivalainen og Peitta Arvallianen hehehe.En ég er smá skotin í þessu lagi:)

*Grikkland.Gott lag en hræðilegur söngur og alltaf sami stílistinn á þessum atriðum hjá el grikkjos.En þetta mun líklega virka á ansi marga.


En þá er það spáin duddurumm!!!

Ég held að þessi lög komist áfram á morgun:

Armenía
Írland
Rússland
Grikkland
Bosnía og Hersegóvína
Slóvenía
Noregur
Ísrael
Pólland
Finnland










» 1 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 20:53:33 / Brynja

Eurovision rýni

Olræt,nú kemur það.

Ég verð að byrja á að segja að mér finnst frekar slappt hjá Rúv að gera ekki einn þátt enn með Palla og félögum til að fara yfir fyrri forkeppnina.Ég ætla samt að gefa mín komment á þau lög í næstu rýni,ásamt þeim fimm lögum sem verða í næsta þætti á lau.

Það er auðvitað Serbía og svo plebbarnir frá Spáni,Frakklandi,Bretlandi og Þýskalandi sem ég er alveg hissa á, að þeir kunni við að borga sig inn í keppnina.Enda hefur það sýnt sig undanfarin ár að fólk er ekkert að spandera stigum á þjóðir sem eru hvort sem er ''seif''.Ég skil það alveg.En nóg um það.

*Lettland.Þetta eru sjóræningjarnir sem syngja Ho ho ho we say hey hey hey afturábak:)Við skulum þakka fyrir að hafa ekki sent út Merzedes club!Það hefði verið DISASTER!!!Eníhjú,þá finnst mér þetta leiðinlegt lag og leiðinlegt fólk,punktur og basta!

*Króatía.Þetta lag var ég búin að hlusta á einu sinni og það floppaði hjá mér.Svo þegar ég sá myndbandið þá snerist dæmið við.Mér finnst gömlu mennirnir bara ansi jollí og ég skil lagið núna.Þetta er gamaldags fílingur,bæði í laginu og myndbandinu og svo eru kallarnir auðvitað ævafornir,en voða hressir bara.Ég er hrifin af þessu.

*Búlgaría.Dj please take me away og já það eru tveir dj-ar alveg að missa sig í skratsi og látum,mætti vera aðeins minna,en ókei.Þetta er eitt af bestu lögunum í keppninni.Ekkert að þessu og þetta kemst áfram.

*Danmörk.Þetta lag finnst mér flott,er búin að vera að vandræðast aðeins með það samt,svona ''á ég að fíla það eða ekki''en niðurstaðan er ég fíla það!Það stígur við hverja hlustun og gaurinn er svakalega sjarmerandi.Ég er alveg viss um að hann á eftir að eiga sviðið og salinn og næla sér í ansi mörg atkvæði út á mojoið.Það er allavega nóg af því.

*Georgía.Þetta er eina friðarlagið í keppninni,thank god!Og það er leiðinlegt leiðinlegt leiðinlegt.Pissupása!!!!

*Ungverjaland.Pása til að ná í bjór!!!Þetta er væmið lag um kertaljós sem ég hef heyrt hundrað sinnum áður.Bjakk!

*Malta.Ejá....þetta lag heitir Vodka....voru þeir uppiskroppa með nöfn???Ég fíla þetta lag engan veginn og myndbandið er svo hallærislegt og söngkonan er fáránleg.Þeir eru að reyna að höfða til vodka þjóðanna austantjalds og vá,hvað þetta er fáránleg hugmynd.Núll stig frá mér!

*Kýpur.Femme fatale eða tálkvendi.Mér finnst þetta ágætt lag,engin flugeldasýning en ég er alltaf pínu heit fyrir gamaldags áhrifum og þjóðlegum.Tálkvendið sjálft er með geggjaða rödd!!

*Makedónía.Þetta er R&B drulla,mjög leiðinlegt og ég hef heyrt það ''live''og söngkonan algjörlega skeit upp á hnakka þar.Vona að henni gangi illa múhahahaha!Brynja vonda:)Mér er bara meinilla við þetta.

*Portúgal.Það eru margir hrifnir af þessu og þetta er ekki alslæmt en nær mér samt ekki.Söngkonan hefur einhver dáleiðandi áhrif á mann samt og hún algjörlega heldur þessu lagi uppi.Það er samt erfitt að vera dáleiddur af manneskju sem er svo....ég verð bara að segja,hryllilega óheppin í framan.En þetta er samt besta framlag Portúgala í sennilega 5 ár.


Þannig var nú það.

Nú býst ég við að fá komment,alveg helling!

Svo þegar nær dregur þá ætla ég að raða niður í sæti.....kannski topp tíu eða eitthvað,kemur í ljós.Þá verðið þið líka að vera með.

Hér kemur tímasetningin á keppnunum:

Þri.20.maí kl.19:40

Fi.22.maí kl.19:00

Lau.24.maí kl.19:00

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.05.2008 23:28:22 / Brynja

Eurovision sýki hf

Önnur Eurovision rýni eeeeer á leiðinni!Á morgun!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 20:53:58 / Brynja

Eurovision rýni

Jæja krakkar mínir,Eurovision aðdáendur og aðrir.

Síðasta laugardag var Páll Óskar með þátt á Rúv þar sem hann var með Guðrúnu Gunnars,Dr.Gunna og Reyni reyni í spjalli um 9 fyrstu lögin í undankeppninni.

Ég ætla að fylgja Palla krúttíbossa og félögum í þessari yfirferð um lögin og segja mitt álit.

Sigrún Árna,nú kemur það:)Endilega segðu mér þitt álit og auðvitað allir hinir:)


*Ísland:Mér finnst lagið okkar alveg ofboðslega fínt og Frikki og Regína eru auðvitað framúrskarandi söngvarar og ég veit að þau munu standa sig vel í Serbíu.Myndbandið finnst mér líka mjög skemmtilegt og fyndið.Hey,gay-maður,í ansi góðum holdum að djamma með litla kínverska vininum sínum hehehe.Getur ekki klikkað:)Þetta er íslenskur húmor í hnotskurn en það eru kannski ekki allir sem fatt´ann en bítterinn!!!Verðum við ekki að reyna að vera bjartsýn?Áfram Ísland!!!

*Svíþjóð:Svíagrýlan Charlotte Perelli er mætt til leiks aftur.Hver man ekki eftir þegar hún hamsaði Selmu með Take me to your heaven?Frekar fúlt en við erfum það ekki ok.Hér er hún með gott og grípandi lag,jafnvel vinningslag ef  ég má vera svona djörf.Góður kraftur í því og Barbí lúkkið gæti blífað:)Hún er rosa skutla og hryllilega góð söngkona!Stockholm 2009???Kemur í ljós:)

*Tyrkland:Ég er svaka skotin í þessu lagi,rosalega kraftmikið og gott rokklag.Þeir syngja á móðurmálinu,en gott og vel.Mér hefur alltaf líkað vel við Tyrknesku.Þetta verður í topp 3,sanniði til:)

*Úkraína:Shady lady....diskó smellur....veit ekki alveg með það en þetta er pínu grípandi og söngkonan er með töff rödd.Þau eiga alveg sjens á að komast áfram en fyrir mína parta þá finnst mér þetta bara allt í lagi.Gott uppfyllingarefni ef þið vitið hvað ég meina en það er samt ekki alveg nógu gott.

*Litháen:Ahhhh....þetta er mjög vont bara....vil helst ekki heyra þetta lag aftur.

*Albanía:Já,ég var frekar hrifin af þessu,falleg ballaða og vel sungið.Ég er búin að heyra það 4 sinnum og ég get ekki raulað það.Alls ekki ''catchy''en fallegt engu að síður en því miður ekki nógu eftirminnilegt:(

*Sviss:Margir eru hrifnir af þessu lagi og spá því jafnvel sigri.Ég spyr...á hverju eru þeir eiginlega???Þetta er hryllingur!!

*Tékkland:Þeir eru með í annað skipti og ÞEGAR þeir drulla upp á bak í forkeppninni þá gæti ég trúað að vonbrigðin yrðu eins og í fyrra,það var nú meiri fýlan!Lagið í fyrra var frekar gott en í ár er leiðinlegheitin allsráðandi.Ekkert grípandi lag og ég hélt þegar myndbandið byrjaði að Palli hefði óvart sett inn einhverja gamla klámmynd.Söngkonan sómar sér vel í flokki með Leoncie.ALGJÖR HORROR!!!

*Hvíta-Rússland:Þetta lag minnir mig á eitthvað 80's lag og ég get ekki munað hvað!Allt í lagi....þetta er bara frekar gott lag og ég gæti alveg trúað að það kæmist áfram.Myndbandið er tilgerðarlegt og gaurinn er að reyna að vera einhver annar en hann er en þetta sleppur.

» 5 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 20:18:47 / Brynja

Gúrkutíð

Ég veit að Olga Guðlaug Albertsdóttir mun missa sig yfir þessari sögu:)

Við Nonnsló vorum í Úrval í dag og ég ætlaði að kaupa gúrku.Þetta voru allt hlussugúrkur,humangus og ég var eitthvað að tuða yfir því.Var að spá í að láta taka eina í tvennt fyrir mig,hef gert það áður og það er ekkert mál.Nonni fékk nóg af tuðinu,spurði mig hvort ég vildi virkilega spara hundrað kall eða eitthvað álíka.Þá varð ég enn þrjóskari í þessum fyrirætlunum mínum og ætlaði að strunsa af stað með gúrkuhelvítið.Hvað haldiði að hann hafi gert??Reif hana af mér og braut hana í tvennt!!!!Þar hefurðu hálfa gúrku!!!Ég gjörsamlega missti mig úr hlátri og fólk var farið að stara hehehe.Mikið ofboðslega var þetta fyndið:)Svo þegar við komum að kassanum þá var Dista eitthvað að spá í þessari skrítnu gúrku,ég neyddist auðvitað til að kaupa báða helmingana.Ég reyndi að halda kúlinu og það tókst ágætlega en missti það algjörlega þegar ég labbaði út og hló þar til tárin streymdu:)

Nonni leysir vandamálin á einfaldan og skilvirkan hátt:)

» 11 hafa sagt sína skoðun

03.05.2008 00:38:32 / Brynja

Vikunnar....

Kominn tími á ''Vikunnar'' er það ekki?

*Ógeð vikunnar:er án efa ''góði'' pabbinn í Austurríki sem hélt dóttur sinni fanginni og átti með henni sjö börn!Ojbara!!!Og hann er ekkert að fara að fá neitt svakalega þunga refsingu,15 til 20 ár.

*Tæki vikunnar:er daddara.....Soda stream tækið hans Nonna...okei þá.Soda stream tækið mitt.Ég er svo sniðug þegar mig langar í eitthvað þá gef ég Nonna það bara hehehe.Er ég vond?

*Búðakona vikunnar:er Anna Heiða sem pantaði tækið og hún reddaði líka Senseo vélinni fyrir mig.Anna mín,þú veist hvar ég á heima ef þú vilt hressingu eftir langan vinnudag:)

*Besti dagur vikunnar:1.maí,klárlega!Working class hero.....dararararara:)

*Horror vikunnar:blóðprufa!!!!Þarf að segja meira????

*Mest surprise vikunnar:er vafalaust Sturla ''sturlaði'' truckdriver og terroristi:)Semsagt,talsmaður vöruflutningamanna í mótmælum þeirra.Ég las grein um hann á B tveimur um að hann var andsetinn á yngri árum.Það var frumbyggi í Ástralíu,galdramaður sem að ásótti hann,fjölskylduna og vinina í mörg ár.Spes:)Ég mæli með að þið lesið þetta,ansi athyglisvert.

*Gleði vikunnar:er að við erum laus við geitungana.....í bili:)Þeir voru vaknaðir og byrjaðir að vera óþolandi eins og þeirra tilgangur er ábyggilega,fyrir 3 vikum síðan.Þeir sem að segja að þeir séu bara árásargjarnir á haustin eru lygarar!Einn var búinn að hreiðra vel um sig í hárinu á Evu mágkonu og ég sló hann í burtu og hvað gerði kvikindið?Reyndi að ráðast á okkur!!!

*Svali vikunnar:er gaurinn sem var á rúntinum í gúddí fíling,nakinn!!!!Og var svo gómaður af löggunni hehehe.

*Unaður vikunnar:var lagið sem ég heyrði með Eyþóri Inga í dag á Bylgjunni.Sjett!!!!Hann er svo góður!



» 6 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 20:26:10 / Brynja

1.maí

Til hamingju með daginn verkafólk!

Hér var dagurinn haldinn hátíðlegur með kaffi og tilbehör.

Ég er varla að nenna að velta mér upp úr því að verðbólgan át upp launahækkunina mína og vel það.Þetta er alltaf svona og það er lítið sem maður getur gert,eiginlega ekki rassgat í bala.

En ég ætla ekki að vera með svartsýni,ekki of mikla allavega:)

Ég keypti sumargjöf í dag handa Nonna(segjum það bara)Soda stream tæki og mikið ofboðslega er gaman að þessu tæki og tala nú ekki um hvað þetta er góður drykkur.Takk Anna Heiða!!!Hún pantaði tækið fyrir mig,uppáhaldsbúðakonan mín:)

Allir að koma í heimsókn og fá sódavatn!!!Jei!!!



» 1 hafa sagt sína skoðun

27.04.2008 20:11:25 / Brynja

Gleðilegt sumar!

Ég veit hehehe,Sumardagurinn fyrsti er löngu liðinn en ég má samt alveg segja þetta!!!Já,semsagt,gleðilegt sumar kæra fólkið mitt og takk fyrir veturinn:)Það er ekki beint sumarlegt núna,skítakuldi og spáð norðlægum áttum og snjókomu næstu daga.Við látum það ekkert á okkur fá samt.Sól í hjarta,er það ekki?

Núna er Euro-spenningurinn í botni og Nonni er búinn að ná í lögin 43 fyrir mig á netinu og nú er verið að hlusta(ég,ekki hann)Það er nú ansi mikið krapp þarna á ferðinni,nokkur ágæt lög og örfá mjög góð.Núna er ég búin að uppgötva Serbíu,ofboðslega falleg ''Balkan ballaða''Nú,svo er Noregur með ansi gott lag en því miður,frekar slappa söngkonu:(Grikkland finnst mér líka frekar gott en það er sama vandamálið og hjá Nojurunum,arfaslöpp söngkona.

Mér skildist á Hoffu í dag þegar ég talaði við hana að Páll Óskar ætli að vera með þætti í sjónvarpinu næstu helgar þar sem verður spökulerað í lögunum og þau auðvitað spiluð og ég hlakka mikið til þess.

En ég vildi bara láta vita af því að ég er á lífi,voða jollí,enda unnu mínir menn Formúluna í dag og það var ansi gleðilegt:)

Annars bara....GAAAAAS!



» 5 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 19:52:07 / Brynja

Haldið ykkur nú!

Mánuður í Eurovision og ég veit að sumir fá nettan hroll en ég og fleiri(ofsafengnir) unnendur Júró gleðjast afskaplega mikið og skápa-unnendur Júró.Komiði út!!!!Ekkert asnalegt við það:)

Ég lýsi yfir ánægju minni með nýja útgáfu af This is my life og myndbandinu.Mér finnst þetta frekar fyndið vídeó,Íslenskur húmor eins og hann gerist bestur:)Og lagið er afbragð og ég ætla að gerast mjög ''breif''og spá því að við drullumst loksins upp úr þessari stinky undankeppni og náum langt á úrslitakvöldinu.Stend og fell með því!!!

Ég er að grúska í lögunum,ekki búin að heyra öll en þau lög sem ég hef heyrt þá eru ansi mörg eins og sársauki í taðgatið:)Það eru þrjú lög sem ég vildi heyra aftur og þau eru frá Búlgaríu,Tyrklandi og Svíþjóð.Hin sænska Charlotte Nilsson(núna Perelli)sem rústaði Selmu um árið,á samt besta hittarann að mínu mati.Hlusta á það aftur og aftur.Hvað er málið með þessa helvítis Svía???Alltaf svo perfect eitthvað!!Það er samt ekki hægt að hata þá....nema kannski í nokkrar mínútur eftir að þeir rústa okkur í handbolta en það er ekkert nýtt:)

Meira um Júró seinna krakkar mínir.....þetta er að byrja!!!!


» 19 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 21:51:04 / Brynja

Lífsbókin

Ljúktu nú upp lífsbókinni,

lokaðu ekki sálina inni.

Leyfðu henni í ljóði og myndum,

leika ofar hæstu tindum.

Svipta burtu svikahulu.
Syngja aftur gamla þulu
líta bæði ljós og skugga,
langa til að bæta og hugga.

Breyta þeim sem böli valda
breyta stríði margra alda.
Breyta þeim sem lygin lamar,
leiða vit og krafta framar.

Gull og metorð gagna ekki
gangir þú með sálarhlekki.

Ljóð Laufey Jakobsdóttir a.k.a bjargvætturinn Laufey úr Krókódílamanninum með Megasi.

Lag Bergþóra Árnadóttir

Fallegt....ekki satt?


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 20:19:53 / Brynja

Eyþór Ingi ''frændi''

Ég get ekki verið minni manneskja en allir sem hafa bloggað og tjáð sig yfir höfuð um undradrenginn Eyþór Inga.

Ég er ekki með Stöð 2 þannig að ég er ekkert inni í þessum þáttum,en það er eitt myndband með honum á Youtube með laginu úr Jesus Christ Superstar og það er GEGGJAÐ!!!Svo hefur Siggi Hall sent mér eitt lag með honum,Jet black Joe lag,rosalega flott.

Nú kemur grobbið:)Afi hans heitinn og afi Nonna heitinn voru bræður og Nonni er þannig gerður að honum finnst ættartengls ekki merkileg....ókei,virðum það bara,en mér finnst þetta ofboðslega merkilegt:)Ég fæ til dæmis aldrei nóg af að monta mig af Stebba Hilmars frænda mínum....finnst það alveg svaðalegt:)Ég held að Íslendingar séu þannig flestir,hrikalega glaðir með fræga ættingja,eða hvað haldið þið?

En jæja,þó ég hafi ekki fylgst með þessum þáttum þá verð ég samt að segja að Eyþór Ingi er hryllilega fær söngvari.Hann er mjög ungur en samt eitthvað svo ''pro'' og vandaður drengur,góðlegur og laus við stæla og mont.

Ég er fullviss um að eftir ansi mörg ár þá verður hann eins og Stebbi FRÆNDI hehehe,virtur,alltaf betri og betri söngvari og ekki í ruglinu eins og svo margir frægir.

Ég skal éta.....eeee ekki hattinn minn heldur loðhúfuna mína ef hann vinnur ekki þessa keppni!Hann er allavega búinn að vinna hjarta mitt og eyru og ég ætla að bjóða mér í heimsókn ti Ninna á morgun til að sjá síðasta þáttinn af Bandinu hans Bóbó Marteins:)



» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 29
Dúllan mín
Heimahagarnir
Lag vikunnar